Verslun
Verslun okkar er staðsett í Borgarási rétt utan við Flúðir. Þar verður hægt að kaupa ullarvörur og unna ull.
Einnig mun verða hægt að kaupa ullarsápuna okkar ásamt duftlitum til litunar á ull.
-
Léttlopi – Ístex
600 kr. Details This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page -
Hringprjónar
990 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page -
Beyond Clean – Djúphreinsiefni
1.890 kr. – 4.190 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page -
Beyond Soft – Mýkingarefni
1.690 kr. – 3.790 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page -
Beyond Fibre Wash – Þvottaefni
1.790 kr. – 3.990 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page -
Unicorn Power Scour – Djúphreinsiefni
1.890 kr. – 4.190 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page -
Unicorn Fibre Rinse – Mýkingarefni
1.690 kr. – 3.790 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page -
Unicorn Fibre Wash – Þvottaefni
1.790 kr. – 3.990 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Hugsjónin
Við leggjum áherslu á fræðslu og upplýsingagjöf um mikilvægi sjálfbærni í ullarvinnslu. Með því að deila þekkingu og starfsaðferðum mun Ullarverið fræða viðskiptavini og samfélagið um mikilvægi sjálfbærar framleiðslu og hvernig hver og einn getur lagt sitt af mörkum til umhverfisverndar.
- Sjálfbærni
- Náttúrulegt
- Fræðsla
- Vinnustofur
Ullarvinnsla með nýju móti & persónuleg þjónusta
Leitast er við að veita persónulega þjónustu og uppfylla óskir viðskiptavinanna á sem bestan máta.
Ullarverið leggur áherslu á rekjanleika ullarinnar og að viðskiptavinur fái sína ull unna og afhenta.
Fræðsla og vinnustofur tileinkaðar ull og ullarvinnslu verða í boði í Ullarverinu.
Ullin
Litlar einingar
Ullarverið sérhæfir sig í að vinna litlar einingar. Einstaklingar geta komið með eigin ull til vinnslu og fengið hana til baka í því formi sem óskað er eftir. Ullin er þvegin, tætt og sett í lyppu eða kembu.
Náttúrulegt
Öll vinnsla á ullinni er á sem náttúrulegastan máta. Einungis eru notuð niðurbrjótanleg hreinsiefni til að þvo ullina og hreint íslenskt vatn.
Vinnustofur
Fræðsla
Námskeið verða auglýst í ullarvinnslu fyrir einstaklinga og hópa. Upplagt fyrir vinahópa, saumaklúbba og fróðleiksfúsa að koma á námskeið og vinna saman verkefni og fræðast í leiðinni.
Vörusala
Í verslun Ullarversins verður hægt að kaupa vörur frá Ullarverinu ásamt því að vörur frá handverksfólki í nágrenninu verða til sölu í umboðssölu.
Styrkur
Ullarverið hlaut styrk frá SASS í gegnum Sóknaráætlun Suðurlands vorið 2024. Styrkurinn veitti okkur byr undir báða vængi við undirbúning Ullarversins. Með styrkveitingunni varð möguleiki á að hrinda þessari hugmynd um Ullarverið í framkvæmd.